Orkuhleðsla

Nýtt / Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull - Orkuhleðsla (2 dagar)

Í þessari undraveröld þjóðgarðsins er sérstakt og fjölbreytilegt landslag annars vegar og sambýli manna innbyrðis og við náttúruna hins vegar, hvort tveggja megineinkenni svæðisins. Hér hafa stigið fram tilkomumiklar verur og bústaðir með hjálp krafta úr sitt hvorri áttinni; brimöldu úthafsins og hraunstraumsins úr iðrum fjallanna. Kórónan á verkið er svo sjálfur jökullinn sem leggst eins og slör yfir hlíðarnar sem verða fyrir vikið síkvikar og breytilegar. Í þessu umhverfi hafa kynslóðir manna og dýra fundið sér skjól og lífsviðurværi sem sagan lýsir á stundum að sé á mörkum tveggja heima. Í áraraðir hefur þetta umhverfi heillað þekkta rithöfunda og listamenn eins og t.d.; Jules Verne, Halldor Laxnes, Diter Roth og JóhannesKjarval.

Á þessum tveim dögum munt þú líka kynnast heimafólki og komast undir yfirboðið í eiginlegri og óeiginlegri merkingu orðsins. Þú ferð kannski ekki alla leið niður eða undir, sjá; "Journey to the Centre of the Earth", en a.m.k. aðeins í áttina.

Innifalið:     Flutningur innan svæðisins, svefnpokagisting í svefnsal eða í 8 manna tjöldum, leiðsögnum svæðið og fullt fæði (morgunmatur, hádegis- og kvöldmatur... með ívafi af sjálfsafgreiðslu), leiga á reiðhjóli, vasa-/ennisljós fyrir hella og gljúfur og búnaður fyrir jökulgöngu ef viðrar fyrir slíkt.

 

Verð:         34.000 IS.kr. á mann - Hópstærð 10-16

                  40.000 IS.kr. á mann - Hópstærð 4-9

 

Panta ferð

 

Mæting: Félagsheimili Ólínu á Arnarstapa

Ferðaáætlun:

Dagur 1: Við göngum og hjólum til Djúpalóns og Dritvíkur. Þema dagsins: Fuglaskoðun, stórbrotið landslag, hellaskoðun og sögustaðir.

Dagur 2: Við ökum upp að jökkli og göngum til baka með viðkomu í hellum og gljúfrum. Þema dagsins: Landmótun, dulúð jökulsins, sagnaarfurinn, gróðurhúsaáhrif og lífstílspælingar.

 

Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 195
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 188488
Samtals gestir: 50611
Tölur uppfærðar: 21.5.2012 07:48:55

Google Analytics