Kynningar
Hvert erum við að fara?
Kynning á vistvænni ferðaþjónustu og ferðamáta
Jón Jóel býður upp á stutta kynningu á vistvænni ferðaþjónustu (20-30 mín).
Hann heimsækir vinnustaði og ýmsar samkomur og sýnir fram á með myndum og spjalli hvað slík ferðaþjónusta á brýnt erindi í dag. - Hafið samband í s. 695 9995
Já, hvert erum við eiginlega að fara? - Þetta er margræð og skemmtileg spurning og það er virkilega áhugavert að skoða hana í tengslum við ferðalög (túrisma) fyrr og nú. Reyndar er lífið sjálft sagt eitt alsherjar ferðalag og að mörg hin minni og styttri ferðalög geti verið góður spegill á líf okkar í stærra samhengi, t.d. á áhrif okkar á náttúruna. Ferðamennska hefur ýmsar neikvæðar hliðar, eins og svo margt í okkar neyslumynstri. Hún getur líka haft mjög jákvæðar hliðar, þ.e.a.s. ef við vitum hvert við erum að fara og hverjar afleiðingarnar eru fyrir umhverfið. Vistvæn ferðaþjónusta (eco-tourism) gefur okkur tækifæri til að leiða þetta í ljós.
--------------------------



