Útbúnaður
Öryggismál og útbúnaður
Veður
Veðrið er alltaf áhugavert við Breiðafjörð enda er það meðal vinsælustu umræðuefna okkar þar. Veðrið hefur mikil áhrif á líf og störf fólsins hér eins og annars staðar. Hér við fjörðinn (Stykkishólmi) byrjuðu fyrst reglulegar og vandaðar veðurathuganir á Íslandi og hafa verið stundaðar þar óslitið frá 1846. Meðalhitastig yfir árið í Stykkishólmi er um +4°C og yfir sumartímann ca. +9°C.
Heimild: www.vedur.is
Breiddin í veðurfari getur engu að síður verið mjög mikil yfir árið og jafnvel yfir einn dag. Því er nauðsynlegt að vera undir það búinn; taka með bæði sólarvörn og sundföt, hlýja húfu og vettlinga. Hið fornkveðna á hér við eins og víðar: Það er ekkert sem heitir vont veður, heldur vondur klæðnaður.
Á myndinni hér fyrir ofan sést að meðalhitinn hefur hækkað um ca. 0.5 °C tveimur öldum. Það þykir sumum e.t.v. ekki mikið en "á Íslandi hefur hlýnað verulega á liðnum áratugum" segir á vef Veðurstofu Íslands og það mun hafa og hefur þegar haft veruleg áhrif á lífríkið við Breiðafjörð og víðar. Mengun andrúmsloftsins og hlýnunin fer fyrst að aukast fyrir alvöru um miðjasíðustu öld. Sjá nánar hér fróðlegt efni um loftslagsbreytingar á vef Veðurstofu Íslands.
Erfiðleikastig og gráðun ferða
1. Létt Gengið eftir vegi eða góðum göngustíg. (Þingvellir)
2. Létt til miðlungs Göngustígur með miðlungs hækkun. (Esjan upp að steini)
3. Miðlungs Göngustígur með nokkrum bratta. (Esjan)
4. Miðlungs til krefjandi Ógreinilegur stígur og bratti. (Snæfellsjökull)
5. Krefjandi Enginn stígur og mikil hækkun. (Hvannadalshnúkur)
6. Krefjandi + Vetrarferðir - Gist í tjöldum. (Kjölur)
Mat á eigin færni
A - Fer af og til út að ganga og hjóla á stígum á léttum skóm.
B - Er vön/vanur göngu- og hjólatúrum en á ekki gönguskó.
C - Er vön/vanur að ganga og hjóla og á mína gönguskó.
D - Hef verið ein/einn í göngu- og hjólaferðum og gist í tjaldi.
E - Er vön/vanur löngum göngu- og hjólaferðum og að liggja í tjaldi.
F - Er vön/vanur fjallaferðum og hef gist í tjaldi um vetur.
Útbúnaðarlisti
Föt
- Göngubuxur
- Vind og vatnsþéttar buxur og jakki
- Hlýja peysu eða vesti
- Síðar nærbuxur
- Hlýja þynnri peysu (t.d. úr ull)
- Nærföt
- Sokka
- Stutterma boli
- Létta gönguskó (hlaupaskó)
- Gönguskó með ökklastuðningi
- Sandala með hælreim
- Vaðskór
- Derhúfu eða sólhatt með reim undir höku.
- Buff eða eyrnaband
- Langerma léttur jakki
- Stuttbuxur
- Sundföt fyrir sjóböð, sundlaugar og heita potta.
Persónulegur búnaður
- Lyf og heilsutengt (sérstaklega vegna ofnæmis og þess háttar)
- Sólarvörn með háum styrk (faktor)
- Tannbursti og tannkrem
- Vistvæna sápu/sjampó
- Þvottaklút
- Handklæði
- "Skítapokar" (t.d. hundaskítspokar) til að farga klósetpappír.
- Sólgleraugu
- Myndavél
- Sjónauka
Ath. fyrir göngur
- Göngustafi
- Dagspoka (lítill bakpoki)
- Hitabrúsa
- Vatnsbrúsa
Ath. fyrir reiðhjólið
- Hjálm
- Pumpu
- Nýja slöngu til vara
- Yfirfara bremsur og gíra
- Bögglabera og töskur (ekki nauðsynlegt)
Ath. fyrir tjaldbúðir
- Oftast er gist í stórum tjöldum eða í skálum/heimagistingu. Sumir velja að taka með sér lítið svefntjald.
- Hlýjan svefnpoka (a.m.k. þriggja árstíða)
- Dýna eða undirlegg
Ath. fyrir kajak
Byrjendur á kajak geta ekki byrjað kajakferil sinn í okkar ferðum. Á sjónum munum við fyrst og fremst einbeita okkur að fugla- og selaskoðun. - Athugið að við erum mjög háð veðri og sjávarföllum á þessu svæði.
Hjólaleiga
- Leigutími 3 klst. 1.500 kr.
- Leigutími 6 klst. 2.000 kr.
- Sólahringsleiga 3.000 kr.



