Gestabók
5.2.2011 kl. 10:27
Fæ alveg fiðring.....
Kæru Maggý og Jón Jóel,
Frábærar ferðir í boði fyrir sumarið - ég held ég bara skelli mér með ykkur eitthvað í sumar - verð í bandi.
Kv
Unnur
Unnur Matthíasdóttir
22.12.2010 kl. 1:19
Frábær síða
Frábær síða - endilega bæta við myndefni. kv. Óli
Óli Kristinsson
5.10.2010 kl. 18:18
takk for nydelig spikersuppe
Hei og takk for en svært hyggelig aften hjemme hos dere. Nydelig mat og hyggelig selskap. Må berømme gjkestfrihete!
ann pedersen
4.8.2010 kl. 19:12
Takk
Takk fyrir góðan þátt Jón, ég vissi ekki að þú værir svona góður og afslappaður sögumaður.
Vantar þig nokkuð leiðsögumann sem hefur hjólað mikið í Reykhólasveitinni og á Snæfellsnesi...? Nei ég segi svona, ég öfunda þig að hafa farið út á þessa braut. ég er að trappa niður strætóstarfið
einar þorleifsson
2.8.2010 kl. 15:40
Þakkir
Kærar þakkir frændi minn fyrir einkar skemmtilegan og fræðandi og ljúfan þátt um Sælingsdal. Strákarnir hans Dáta eru alltaf til bóta og gleði. Svavar
Svavar Gestsson
24.6.2010 kl. 19:35
Snæfellsnesþjóðgarður
Ég stóð við stóru orðin og skellti mér aftur í ferð með Út og vestur. Nú var ferðinni heitið í Snæfellsnesþjóðgarð með 6 öðrum konum. Ferðin var í alla staði frábær. Það var mikið hjólað sem á vel við mig og talsvert gengið. Ekki spillti fyrir að við fórum í sjósund í Dritvíkinni. Jón Jóel og Maggý voru að vanda frábær í leiðsöguhlutverkinu. Þetta er lúxusferð, lítið að bera , góðar kvöldmáltíðir alla daga og svo stjanar Jón Jóel í kringum kvenfólkið. Ferðin endar á sameiginlegum kvöldverði þar sem ferðin er gerð upp áður en allir halda hver í sína áttina. Frábært að enda svona ferð á þennan hátt. Ég mæli með þessari ferð fyrir alla þá sem hafa gaman af að hreyfa sig í yndislegri náttúru með frábærum ferðafélögum. Ég er orðin fastakúnni hjá Út og vestur.
Helga Eiríksdóttir
24.1.2010 kl. 19:25
Gangi ykkur vel með þetta!
Þetta sýnast verulega skemmtilegar ferðir, vona að þær seljist vel.
Gangi ykkur vel!
Stefán Helgi Valsson
11.12.2009 kl. 8:32
Á réttri leið!
Ég var að kíkja á síðuna ykkar og líst mjög vel á, sérstaklega vegna þess hversu hógvær og persónuleg hugmyndin öll virðist vera, og hversu mikil virðing er borin fyrir náttúru og samfélagi. Ég er staðráðinn í að fylgjast vel með framhaldinu. Þið eruð greinilega á réttri leið.
Stefan Gislason
8.12.2009 kl. 23:07
Fjölbreytt ferð og skemmtileg
Hæ, hæ
Ég og vinkona mín vorum með KÍ hópnum. Ferð sem er ógleymanleg og verður lengi í minnum höfð. Þegar ég rak fyrst augun í þessa ferð, þá beið ég eftir að það yrði opnað fyrir skráningu. Það sem greip mig var fjölbreytni ferðarinnar. Ganga, hjólreiðar, kajak og útreiðar. Vá, þessi ferð hlyti að vera skemmtileg. Sem hún var svo sannarlega. Hún hafði allt til brunns að bera. Óvæntar uppákomur, puð, gleði og aftur gleði, fjölbreytni í ferðamáta, skemmtilegu samferðafólki og síðan en ekki síst frábærir leiðsögumenn. Maggý og Jón Jóel þið eruð frábær. Þegar leiðir okkar skildu þá var ég svo ákeðin í því að ég skyldi fara í ferð með ykkur næsta sumar. Það stefnir allt það að það verði raunin. Þvílíkt úrval ferða hjá ykkur og hver annarri spennandi. Sjáumst næsta sumar.
Kveðja, Helga
Helga Eiríksdóttir
7.12.2009 kl. 14:49
Takk fyrir síðast og tilhlökkun eftir nýju sumri
Hæ hæ
Langar að þakka þó seint sé fyrir frábæra ferð nú í sumar í æðislegum félagsskap. Þið munið eflaust eftir hjólinu sem skröltist með á bílpalli alla ferðina því knapinn lét aldrei sjá sig. Hver veit nema hann komi með næst? Var að renna yfir ferðirnar sem verða í boði næsta sumar og sé að af nógu er að taka og margt spennandi í boði. Spurning að fara að bera leðurfeiti á skóna og svona til að undirbúa sumarið :-)
Sjáumst vonanadi í sumar
Anna María
Anna María Sigurjónsdóttir
5.9.2009 kl. 20:06
Frábær ferð!
Við hjónin vorum með í KÍ-hópnum sem fór þessa frábæru ferð í júlí í sumar. Við lentum í smá hrakningum fyrsta daginn í þoku og rigningu en það var bara til að gera hana eftirminnilegri. Þessi ferð hefur allt upp á að bjóða til að gera þátttakendur ánægða og endurnærða; erfiði, skemmtun, fróðleik, samveru með góðu fólki, gamansögur, frábæra fararstjórn, góðan mat, dekur, frábær heimboð hjá heimamönnum og svo mætti lengi telja. Þetta var fyrsta gönguferð Palla og því fyrsta ferða okkar hjóna saman. Við mælum eindregið með þessari ferð því við komum endurnærð og hamingjusöm heim. Takk kærlega fyrir okkur.
PS: takk fyrir uppskriftirnar Maggý - mikið væri gaman að fá líka uppskrift af þessu frábæra döðlubrauði sem við fengum hjá þér.
Kær kveðja
Hulda og Palli, Grindavík
28.8.2009 kl. 15:48
Síðbúnar kveðjur !
Þakka samveruna í frábærri ferð, hlakka til að fylgjast með ykkur og bíð spennt eftir næsta sumri .
Kær kveðja,
Unnur
Unur Matthíasdóttir
22.7.2009 kl. 11:34
Dásamleg ferð!
Bestu þakkir fyrir dásamlega ferð. Við áttum von á skemmtilegri ferð, en ferðin varð betri en við áttum von á! Það sem gerði hana sérstaka voru góðir farastjórar með virðingu og væntumþykju fyrir svæðinu og tengingin við söguna og heimafólk. Við hugsum svo sannarleg með hlýhug til Dalanna. Ferðafélagarnir gátu ekki verið betri. Komum endurnærð á sál og líkama heim.
Við mælum eindregið með þessari ferð.
Kær kveðja
Dóra og Guðmundur
Dóra Axelsdóttir
15.7.2009 kl. 15:32
Frábær ferð, frábært fólk
Kærar þakkir fyrir frábæra ferð. Og veðurguðir takk líka. Maður verður aðeins að fá að finna fyrir því að maður er að ferðast á Íslandi eftir þrjá sólríka daga. Það toppar fátt íslenska náttúru í yndislegu veðri en hér setti allt það frábæra heimafólk sem við hittum punktinn yfir i-ið. Halla bóndi í Fagradal og hennar fólk með hlýju fróðleik og kjötsúpu úr hvannalambi. Þóra og Sumarliði með sögulegum fróleik og listfengi, Trausti á Á með skemmtilegum sögum, heimasætan á Skarði sem var svo falleg þegar hún sagði frá dýrgripum kirkjunnar, biskupinn með sinn merkilega boðskap, Helgi Þorgils léttur á fæti með sögur sveitarinnar í hjartanu, Magga Lísa eins og álfkona sem geislaði af og Þóra á Staðarfelli með fangið fullt af mat og hlýju. Einhvern vegin var það hlýjan og væntumþykjan fyrir landinu, sögunni og fólkinu sem gegnumsýrði allt í þessari ferð og ekki síst hjá ykkur Jón og Maggý.
Takk fyrir
Guðný Helga
Guðný Helga Gunnarsdóttir
12.6.2009 kl. 17:10
Sumarfrí bráðum
Já nú fer loksins að styttast í gönguna okkar. Gaman að skoða þessa frábæru heimasíðu. Hlakka til að sjá ykkur og ferðafélagana.
Kær kveðja
Ingibjörg
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
9.6.2009 kl. 22:34
Nesten et år er gått...
...siden jeg var med Inn til Dala og út til Stranda. En fantastisk tur på flere måter. Etter over 20 år i utlendighet i Norge gjenoppdaget jeg på mange måter både naturen, kulturen og særpreget for ikke å snakke om gjestfriheten. Å både gå og sykle (jeg lot kajaken hvile) ga mulighet til å utforske større område. Naturen og veien har andre fremhevet, jeg skal nøye meg med å kommentere og takke for det som har festet seg særlig hos meg. Foruten utmerket reisefølge, spennende innsyn i historien som har utspunnet seg i området i forgangen tid. Den boken jeg tok med meg tilbake til Norge var Laxdæla, og hadde mye større både utbytte og glede av etter denne turen. At jeg selv har familierøtter fra Dalene og dermed tråkket i noen av mine forfedres spor i nyere tid gjorde det ikke mindre spennende. Det som ga denne turen en ekstra dimensjon var å møte lokalbefolkningen som tok imot oss med åpne armer, herlig mat, fortellinger og innsyn i livet slik det også arter seg på landet i dag. Hadde det ikke vært fordi det er mye annet jeg må se først, skulle jeg gjerne tatt turen om igjen, for både å se og lære mer. Ja for ikke å forglemme utmerket reiseledelse. ANBEFALES!!
Sigurborg Óskarsdóttir
25.6.2008 kl. 9:14
Strandirnar
Þetta voru þrír dagar á hjóli frá Ytri Fagradal á Skarðsströnd inn í Hvammssveit. Og þótt ég hafi oft farið fyrir Strandir, þá var þetta sú ævintýralegasta til þessi. Ég hafði aldrei áður staldrað við á Níp þar sem Magnús Blöndal Jónsson, síðar prestur, brauðfæddi ungur drengur sig og bræður sína með því að afla matar í fjörunni seint á nítjándu öld. Né virt jafn vandlega fyrir mér félagsheimilið Röðul sem er örugglega eitt minnsta félagsheimilið á landinu og það eina sem hefur verið notað sem hæli af refaskyttum sem þykir gott að fela sig innandyra og freta á skolla þegar hann kemur upp með Búðardalsánni. Og á sögu sem maður heyrði fyrir tæplega hálfri öld á æskuárum inn í Hvammssveit; harmoníkuleikari sem var að spila þar á balli gerðist svo frakkur að fara að spila djass! Og það var ekki að sökum að spyrja; maður nokkur viðkvæmur á taugum trylltist hreinlega og stökk grenjandi í Búðardalsána, viti sínu fjær - væntanlega af einhvers konar djassveiki. Hann drukknaði ekki.
Ég held að ég hafi aldrei fundið reykelsisilm í Dalasýslu fyrr en á Kvennahóli í Klofningshreppi, hjá grísk-kaþólska biskupnum Michael. Hann er að vísu ekki alveg kórréttur í rétttrúnaðinum en var glæsilegur í svartri hempu með rauðu dralonslána yfir herðunum og margvísleg höfuðföt til skiptanna, kórónur og allt. Og ánægjulegt að sjá næpurnar á útihúsunum, manni fannst andartak eins og maður væri kominn til Moskvu.
Landið í kringum Ytra-Fell er eitt það fegursta í Dölum; skógur og útsýni til eyjanna. Þar var gott að búa í tjaldi og borða dásamlega kvöldmáltíð í fjörunni, soðna í potti á glóðum. Og ekki veitti okkur af þeim krafti sem sú máltíð gaf, daginn eftir þegar við hjóluðum síðasta spölinn í glampandi sól og hraustlegum mótvindi inn í Hvammssveit; á leiðinni voru miklu fleiri brekkur en ég mundi eftir og hafði þó farið fyrir Strandir akandi fyrir ári síðan. Maður sér allt betur á hjóli og finnur betur fyrir því í fótunum og rasskinnunum. En sundlaugin á Laugum læknaði fæturna og rasskinnarnar og maturinn á hótelinu og kaffið í Tungu ráku unaðslegan endahnút á ógleymanlega ferð.
Tómas R. Einarsson
19.6.2008 kl. 16:04
Frábær ferð
Sæll Jón Jóel og takk fyrir frábæra ferð með ykkur hjónum.
Okkur þótti leitt að ná ekki að klára ferðina, en svona er þegar maður er með skuldbindingar og pössunarvandamál á "gamals" aldri.
En ég má til að segja ykkur að við vorum mjög ánægð með ferðina og ekki skemmdi góður félagsskapur!! Ferðin var vel skipulögð og frábært að komast svona heim á bæi og heilsa upp á heimafólk. Þú ert greinilega búin að vinna heilmikla heimavinnu í tengslum við þessa ferð. "Samkomutjaldið" ykkar með kamínunni er algjör perla og leiðin skemmtileg. Gangan fyrsta daginn var einstaklega vel heppnuð og ótrúlega bjart yfir okkur að þokan skyldi ýmist vera á undan eða eftir, en aldrei þar sem við vorum. Í hjólaferðinni var ég mest hissa á hvað Klofningsfjallið er stórkostlega fallegt, en það hef ég aldrei áður skoðað í þessari nánd frá þjóðveginum (þó hef ég oft ekið eftir honum) og líka hvað umferðin var lítil á veginum.
Nú dreymir mig um að fara á hjóli frá Brjánslæk í austur og út á Skógarströnd eins og þið Maggý gerðuð fyrir nokkrum árum. Það eina sem vantar er víst tíminn :-)
En takk fyrir okkur og vonandi eiga fleiri eftir að skrá sig i ferðina í júlí, þessi ferð er í engu síðri en aðrar ferðir hjá FÍ .
Ingaló



