01.06.2011 21:13
Jökullinn kallar
Við bjóðum dagsgöngu á Snæfellsjökul sunnudaginn 5. júní. Veðurspáin er prýðileg. - Þátttökugjald er aðeins 7.000 kr
__________________________
Fórum á jökulinn 28. maí og voru aðstæður alveg ljómandi, bæði fyrir göngu og skíði/bretti. Við tökum með jöklabúnað fyrir þá sem vilja fara upp á þúfurnar og púlkur til að daga upp skíði og bretti.
Hvað gerið þið nú til að taka þátt? Þið skráið ykkur með tölvupósti á netfangið gowest@utogvestur.is þar sem fram koma nöfn og símanúmer. Einnig þarf að staðfesta þátttöku með því að borga þátttökugjaldið inn á
Bankareikning: 0315-26-61090Kennitala: 610909-1320Reikningseigandi: Út og vestur ehf
Mikilvægt að fólk skrái sig hratt og ákveðið svo við áttum okkur vel á þátttökunni. Þið komið ykkur vestur og upp á Jökulhálsinn. Mæting þar kl. 10:00 stundvíslega. Gerið ráð fyrir tveimur og hálfum tíma í keyrslu frá Mosfellsbæ. Við hvetjum ykkur til að samnýta bíla.
Þátttökugjald verður endurgreitt strax á mánudag ef við þurfum að fella ferðina niður vegna aðstæðna (veðurs) og eða dræmrar þátttöku.
__________________________
Veður hafa skipast í lofti. Þessi jökulganga er síðasta ferðin sem við ÚT OG VESTUR bjóðum í vor og sumar, fyrir utan ferð yfir Fimmvörðuháls um miðjan ágúst. - Meira um hana síðar.
Skrifað af JoJo
Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 195
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 188488
Samtals gestir: 50611
Tölur uppfærðar: 21.5.2012 07:48:55



