Út og vestur



Út og vestur 
er fyrirtæki sem skipuleggur útivistarferðir - einkum á Breiðafjarðarsvæðinu.


Jafnvægi er kjörorð fyrirtækisins sem birtist meðal annars í viðleitni til að:

  • Skipuleggja alltaf ferðir í samvinnu við heimamenn á því svæði sem sótt er heim.
  • Fara um án þess að náttúru, menningu, umhverfi og öryggi sé teflt í tvísýnu.
  • Halda á lofti sögu og menningarminjum á hverju svæði.
  • Stuðla að frjóum samskiptum gesta og gestgjafa.

Í þessu felst vistvæn ferðaþjónusta sem er fyrirtækinu mikið hjartans mál.

"Slík ferðaþjónusta auðgar náttúru- og menningarupplifun, er skipulögð af ábyrgum ferðaþjónustuaðilum sem bera umhyggju fyrir gestum sínum, umhverfinu og samfélaginu sem þeir eru hluti af." Skilgreining Alþjóðasambands vistvænnar ferðaþjónustu (TIES) - Unnið er að umhverfisvottun og aðild að TIES og samstarfi við EPSD

Meira um vistvæna ferðaþjónustu

Búnaður:         Oftast er gist í 8 manna tjöldum með möguleika á kyndingu. Farið er um gangandi, hjólandi, ríðandi eða róandi. Yfirleitt fylgir trússbíll eða mótorbátur. Hægt er að hafa milligöngu um leigu á reiðhjólum og kajak en best er að taka með sitt eigið.

Fararstjórar:     Yfirleitt eru það hjónin Jón Jóel Einarsson og Maggý Magnúsdóttir sem eru gamlir útivistarjaxlar með rætur í byggðinni. Þau búa yfir áratuga reynslu af útivist upp til fjalla, inn til dala og út til stranda og hafa uppgötvað að í því felast verðmæti sem þau vilja deila með öðrum.

Upplýsingar:     Sjá bækling: \files\Kynningarefni\Bæklingur til útprentunar.pdf

Sími 695-9995/694-9513 - gowest@utogvestur.is

     

Breiðafjarðarsvæðið er 

sérlega merkilegt, fjölbreytt og auðugt, t.d. vegna:

  • Lífríkis, jarðmyndana og landslags.

  • Blómlegrar menningar um aldir, mótuð af sjósókn og hlunnindabúskap.

  • Sagnaritunar, bókmenningar og skáldskapar.

  • Fólksins sem þar býr, enn kraftmikið og elskulegt.


Flettingar í dag: 130
Gestir í dag: 47
Flettingar í gær: 97
Gestir í gær: 41
Samtals flettingar: 161186
Samtals gestir: 43662
Tölur uppfærðar: 27.1.2012 20:17:47

Google Analytics